Ingibjörg Gunnarsdóttir og Guðni G Kristinsson gáfu á dögunum hjartastuðtæki til minningar um föður Guðna, Kristinn Gunnarsson í Nesi til sveitarfélagsins. Hjartastuðtækið verður staðsett í þjónustumiðstöð sveitarfélagsins að Eyjasandi.
Á fyrsta fundi sveitarstjórnar Rangárþings ytra sem haldinn var 21 júní sl. var Björk Grétarsdóttir kjörin oddviti sveitarfélagsins. Á fundinum var einnig kjörið í önnur embætti sveitarstjórnar og ýmsar nefndir, ráð og stjórnir.