Umhverfisvika í Rangárþingi ytra 22. – 28. maí
Í umhverfisvikunni verður lögð áhersla á að auka umhverfisvitund og ábyrgð íbúa og fyrirtækja á sínu nærumhverfi. Við berum öll ábyrgð!
Við vekjum athygli á!
- Það er komin sumaropnun hjá Sorpstöð Rangárvallasýslu og á miðvikudögum er opið til kl. 18:30 og laugardögum til kl. 16:00.
- Sorpstöð Rangárvallasýslu hefur auglýst sumarhreinsun fyrir íbúa í dreifbýli og þurfa pantanir að berast fyrir 24. maí á strond@rang.is
- Laugardaginn 27. maí verður opinber Plokkdagur í Rangárþingi ytra þar sem allt var á kafi í snjó þegar Stóri Plokk dagurinn fór fram.
Hvetjum íbúa til að fylgjast með á miðlum sveitarfélagsins og taka virkan þátt með því að laga til í sínu nærumhverfi.
Umhverfisnefnd Rangárþings
Ýmiss fróðleikur í tilefni Umhverfisviku
Hvers vegna á að skila rafhlöðum?
Í rafhlöðum eru spilliefni sem eru hættuleg bæði heilsu okkar og náttúrunni komist þau í snertingu við umhverfið. Það er því mikilvægt að engar rafhlöður endi í heimilissorpinu heldur sé komið til úrvinnslu til viðurkenndra aðila sem hafa þekkingu til að farga eða eyða rafhlöðunum, og þar með lágmarka umhverfis- og heilsuspjöll af völdum rafhlaðna.