"Rangárvallasýsla býður upp á ótrúlega möguleika í ferðaþjónustu" sagði Rögnvaldur Guðmundsson sérfræðingur í ferðamálum á fjölmennum fundi um málefni ferðaþjónustu í Rangárþingi ytra í Menningarhúsinu á Hellu í gær.
Leikskólinn Heklukot auglýsir eftir leikskólakennurum
Lausar eru stöður leikskólakennara við leikskólann Heklukot.
Heklukot er þriggja deilda leikskóli með um 60 nemendur frá eins til fimm ára og er markvisst unnið eftir stefnu Grænfánans og Heilsustefnunnar. Í Heklukoti vinnur metnaðarfullt starfsfólk í fallegu héraði sem býður upp á marga möguleika.
Skólanefnd Tónlistarskóla Rangæinga auglýsir lausa stöðu skólastjóra við Tónlistarskóla Rangæinga frá og með 1. ágúst 2015. Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2015. Upplýsingar um starfið veitir Ágúst Sigurðsson formaður skólanefndar í s. 4887000 og agust@ry.is. Umsóknum skal skila með rafrænum hætti til agust@ry.is
Hárrétt viðbrögð sundlaugarvarða á Hellu urðu konu til lífs. „Þetta er afrek,“ segir Þórhallur Svavarsson, forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar á Hellu, en hárrétt viðbrögð sundlaugarvarða urðu konu til lífs sem missti meðvitund í sundlauginni á Hellu á laugardag.
Firmakeppni Geysismanna verður haldin á Gaddstaðaflötum Sumardaginn fyrsta þann 23. apríl. Hópreið verður farin frá hesthúsahverfinu á Hellu kl. 13:00, riðið að Lundi og tekin nokkur lög fyrir viðstadda. Að því loknu verður riðið niður á völl þar sem keppni hefst kl. 14:00. Gleðilegt sumar!