Umhverfisstofnun leitar að landvörðum fyrir sumarið 2020
Umhverfisstofnun leitar að landvörðum sumarið 2020 í Friðland að Fjallabaki og nágrenni og Hrauneyjar. Gert er ráð fyrir að ráða í fimm störf yfir sumartímann. Aðsetur landvarða verður í eða í grennd við verndarsvæðin.
Álagningarseðlar fasteignagjalda hafa verið birtir
Álagningarseðlar fasteignagjalda hafa verið birtir rafrænt á www.Island.is.
Líkt og undanfarin ár munu álagningarseðlar ekki berast á pappír en eru þess í stað aðgengilegir rafrænt. Allt fyrir umhverfið!
Söfnun marka í sýslunni hefur gengið vel en ennþá eiga nokkrir eftir að ganga frá sínum mörkum. Þess vegna framlegni ég frestinn til að skila inn staðfestingu til 31.01. n.k. Velkomið að hringja og staðfesta mörkin þannig.
Auglýst er eftir sérkennslustjóra til starfa í 100% stöðu við leikskólann Heklukot á Hellu í Rangárþingi ytra sem er um 100 km frá Reykjavík. Heklukot er fimm deilda leikskóli með um 75 nemendur frá eins til fimm ára.
Föstudaginn 10. janúar sl. voru 30 ár liðin frá stofndegi Karlakórs Rangæinga og í tilefni tímamótanna hélt kórinn afmælistónleika í Hvolnum á Hvolsvelli ásamt Vörðukórnum, sem er blandaður kór sem starfar í uppsveitum Árnessýslu undir stjórn Eyrúnar Jónasdóttur. Í tilefni stórafmælisins söng Karlakór Rangæinga einungis lög og texta eftir Rangæinga og mátti sjá nokkra höfunda ýmist á meðal gesta eða kórmeðlima.