Byggðasamlag um félagsþjónustu í Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu tók til starfa árið 2003. Að byggðasamlaginu standa Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdals-hreppur og Skaftárhreppur, en sá síðastnefndi gekk að fullu í samlagið um áramótin 2005-2006.
Stofnsamþykktum byggðasamlagsins var breytt á aukaaðalfundi í ágúst 2013. Um áramótin 2013 – 2014 bættist lögbundin sérfræðiþjónusta sveitarfélaga við leik- og grunnskóla við starfsemina í kjölfar niðurlagningar Skólaskrifstofu Suðurlands sem haft hafði sérfræðiþjónustu á svæðinu með höndum frá árinu 1996.
Byggðasamlagið skiptist nú í tvær sjálfstæðar deildir undir einni stjórn, félagsþjónustudeild og skólaþjónustudeild (sjá hnapp hér til hliðar) og heitir Félags – og skólaþjónusta Rangárvalla – og Vestur-Skaftafellssýslu bs.
Í stjórn byggðasamlagsins sitja 5 fulltrúar, einn frá hverju sveitarfélagi sem aðild á að því, ásamt forstöðumanni Félags- og skólaþjónustu.
Félags- og skólaþjónustan er til húsa að Suðurlandsvegi 1-3 á Hellu, sími 487-8125.
Nánari upplýsingar um hvora deild fyrir sig er aðgengileg á heimasíðu félags- og skólaþjónustunnar.www.felagsogskolamal.is
Stjórn félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Sigríður Karólína Viðarsdóttir (RE)
Kristín Hreinsdóttir (Á) ritari
Einar Freyr Elínarson (M) Formaður
Margrét Harpa Guðsteinsdóttir (RY) varaformaður
Einar Kristján Jónsson (S)
Svava Davíðsdóttir (Forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu)
Fundargerðir stjórnar Félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Fundargerðir má nálgast hér.
Samþykktir félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Samþykkt félags- og skólaþjónustu