IÐAN fræðslusetur auglýsir um þessar mundir námskeið fyrir iðnaðarmenn sem starfa við byggingu og frágang votrýma, svo sem eldhúsa, baðherbergja og þvottahúsa.
Ellefu fyrirtæki, stofnanir og samtök hafa myndað samstarfshóp um varnir gegn vatnstjóni. Gríðarlegt eignatjón, mikil óþægindi og jafnvel heilsutjón verður vegna vatnsleka, raka og myglu á íslenskum heimilum ár hvert.
Laugardaginn 22.2.2014 fór fram Héraðsmót HSK í skák í Grunnskólanum á Hellu. 30 keppendur tóku þátt og komu þeir frá 4. Félögum. Keppnin fór val fram og var bæði jöfn og skemmtileg og er mót þetta vonandi komið til með að vera, sem er full þörf fyrir.
Fjarskiptaæfing laugardaginn 15. mars 2014 á áhrifasvæði hugsanlegs Kötlugoss.
Almannavarnanefnd Rangárvalla- og V- Skaftafellssýslu, í samvinnu við Neyðarlínuna og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, boðar til fjarskiptaæfingar á áhrifasvæði hugsanlegs Kötlugoss þann 15. mars n.k. kl. 11:00
Ætlunin er að senda eftirfarandi sms skilaboð í alla farsíma á áhrifasvæðinu til að kanna dreifingu skilaboðanna.
Fræðsluerindi um krabbamein í ristli og ristilspeglanir.
Laugardaginn 8. mars, 2014, kl. 16:00, verður Sigurjón Vilbergsson, lyf- og meltingalæknir með fræðsluerindi um krabbamein í ristli og fyrirbyggjandi aðgerðir gagnvart því.
Erindið verður í Safnaðarheimilinu á Hellu við Dynskála.
Leyndardómar Suðurlands tveir ráðherrar opna 28. mars
Framundan er umfangsmikið kynningarátak á Suðurlandi þar sem ferðaþjónustufyrirtækjum, matvælaframleiðendum, félögum, fyrirtækjum, stofnunum, einstaklingum og öllum öðrum áhugasömum er boðið að taka þátt í.
Tilgangur sjóðsins að styrkja, með fjárframlögum, sérstakar athuganir eða rannsóknir á ýmsum þróunarþáttum í atvinnulífi, samgöngum, fræðslu- og menningarmálum í aðildarsveitarfélögum EBÍ.
41. fundur hreppsráðs Rangárþings ytra á kjörtímabilinu 2010 - 2014.
Fundarboð og dagskrá:
41. fundur hreppsráðs Rangárþings ytra á kjörtímabilinu 2010 - 2014, verður haldinn að Suðurlandsvegi 3, Hellu, fimmtudaginn 27. febrúar 2014 kl. 09.00.
Íbúafundur verður haldinn í íþróttahúsinu á Hellu 27. febrúar n.k. kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Fundarsetning Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, oddviti
2. Kynning á fjárhagsáætlun 2014 - 2017- oddviti.
3. Umræður og fyrirspurnir um framangreinda liði og önnur málefni sveitarfélagsins.