Sumar í Odda er fimm kvölda menningardagskrá styrkt af Menningarráði Suðurlands á vegum Kirkjukórs Odda og Þykkvabæjar. Dagskrá sumarsins verður sem hér segir...
Árleg Oddastefna Oddafélagsins verður haldin í Safnaðarheimili Oddakirkju Dynskálum 8 á Hellu og í Odda á Rangárvöllum laugardaginn 25. maí 2013 frá kl. 13.30 til 17.00. Oddastefnustjórar eru Sr. Guðbjörg Arnardóttir og Drífa Hjartardóttir. Dagskrá fylgir með hér neðar.
Á gámasvæði sveitarfélagsins við Landvegamót sem kynnt er hér á heimasíðunni eru 3 gámar sem ætlaðir eru fyrir bylgjupappa og almennt heimilissorp. Gámarnir við Landvegamót eru merktir og hefur þetta fyrirkomulag gengið ágætlega í vetur. Nú nýverið var hins vegar komið annað hljóð í strokkinn.
Samkvæmt 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar lýsingar að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum. Lunansholt 2, Landsveit, Stóra-Bót, Rangárvöllum, Hungurfit, Rangárvallaafrétti og Jarlsstaðir, Stóru-Völlum.
Listakona á heimaslóð - Tónleikar í Selinu Stokkalæk
Glódís Margrét Guðmundsdóttir píanóleikari mun halda tónleika í Selinu á Stokkalæk á annan í Hvítasunnu, hinn 20. maí nk. Þar mun hún leika verk sem hún hyggst flytja í píanókeppni Norðurlandanna í Danmörku nú í júní og síðar einnig á tónlistarhátíðinni Casalmaggiore Music Festival á Ítalíu.
Leikskólinn á Laugalandi fær 1,2 milljóna króna styrk frá Sprotasjóði
Leikskólinn á Laugalandi hefur hlotið 1,2 milljónir í styrk frá Sprotasjóði. Styrkinn á að nota til að þróa starf leikskólans næsta vetur. Verkefnið gengur út á það að spinna saman ART, upplýsingatækni og þróa nýtt sýnilegra námsmat barnanna. Framundan er mjög spennandi skólaár bæði fyrir nemendur og starfsfólk.
Sorpstöð Rangárvallasýslu auglýsir vor- og sumarhreinsun
Dagana 20. maí - 9. júní 2013 verður hreinsunarátak í sveitum á vegum Sorpstöðvar Rangárvallasýslu. Gámar verða á tímabilinu staðsettir á eftirtöldum stöðum, þ.e. á „gömlu“ gámastæðum þessara staða: Skógum, Heimalandi, A-Landeyjum, V-Landeyjum, Fljótshlíð, Bakkabæjum, Rangárvöllum (vegamót Gunnarsholtsvegar og Þingskálavegar), Þykkvabæ, Hellu og Landvegamótum.
Laugardaginn 1. júní kl.17:00 ætla Ómar Diðriks Sveitasynir að halda tónleika í Safnaðarheimilinu á Hellu. Með þeim á syngur miðstigskór Grunnskólans á Hellu og Oddasóknar. Þetta verða "stuð og stemning tónleikar" þar sem þeir spila sín hressustu og kannski skemmtilegustu lög.
Veggspjöld um ferjuhald í Þjórsárholti í Gnúpverjahreppi verða formlega afhent Samgöngusafninu á Skógum þann 18. maí nk. Lögferja var í Þjórsárholti allt til 1966 og áður en brú var byggð yfir Þjórsá var ferjan í Þjórsárholti ein aðalsamgönguleiðin milli uppsveita Árnes- og Rangárvallasýslna og upp á hálendið.
Notum viðburðadagatalið öllum íbúum og hagsmunaaðilum til hagræðingar
Við viljum benda lesendum á viðburðadagatal sveitarfélagsins á heimasíðunni. Dagatalið er staðsett hér hægra megin á forsíðunni. Undir dagatalinu birtast næstu 5 viðburðir sem skráðir eru í kerfið. Viðburðir þurfa ekki að vera stórir til að komast á dagatalið og við hvetjum ykkur til að senda inn upplýsingar um viðburði stóra og smáa. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.