Jón Valgeirsson, sveitarstjóri RY og Magnús Ragnarsson, formaður Skotíþróttafélagsins Skyttur handsa…
Jón Valgeirsson, sveitarstjóri RY og Magnús Ragnarsson, formaður Skotíþróttafélagsins Skyttur handsala samninginn.

Þjónustusamningur við Skotíþróttafélagið Skyttur var undirritaður á dögunum. Þetta er fyrsti samningur sem RY gerir við Skytturnar.

Þjónustusamningunum er gert að efla samstarf milli Rangárþings ytra og félaganna í sveitarfélaginu og tryggja öflugt íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf fyrir börn og unglinga.

Samningnum er ætlað að tryggja og styrkja enn frekar starfsemi félagsins, enda er sveitarfélagið þeirra skoðunar að það sinni öflugu og viðurkenndu íþrótta- og forvarnarstarfi.

Fyrir utan árlega greiðslu fær félagið greitt fyrir Íslandsmeistara og alþjóðlega titla eins og norðulanda-, evrópumeistara og heimsmeistaratitla í íþróttagrein sem viðurkennd er af ÍSÍ.

Samningurinn gildir út árið 2027.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?