Tengill á reglurnar á pdf-sniði

1. gr. Gildissvið

Reglur þessar eru settar á grunni Skólastefnu Rangárþings ytra og Ásahrepps 2016 –Göngum

glöð til verka–og gilda um nema sem leggja stund á háskólanám í grunnskólafræðum og starfa í grunnskólum Odda bs.

2. gr. Markmið

Markmið með reglum þessum er að tryggja að menntunarstig starfsmanna í grunnskólum Odda bs. til að viðhalda sem mestri fagmennsku í skólastarfinu.

3. gr. Styrkhæft nám

Reglur þessar gilda um styrk til eftirfarandi náms:

  • Grunnskólakennaranám (B.Ed.-180 ECTS og Masternám-120 ECTS)
  • Nám í kennslufræðum til kennsluréttinda
  • Annað viðurkennt nám í grunnskólakennarafræðum

4. gr. Styrkþegar og umsóknir

Umsækjandi skal vera starfsmaður í grunnskólum Odda bs. í a.m.k. 50% starfshlutfalli þegar sótt er um styrk. Umsókn um styrk skal berast skólastjóra mánuði fyrir upphaf haust- eða vorannar á þar tilgerðu umsóknarblaði sem finna má á heimasíðu Odda bs. og hjá skólastjórum. Í umsókn skulu koma fram nákvæmar upplýsingar um fyrirhugað nám, námstíma og starfsferil umsækjanda. Ber umsækjanda að skila staðfestingu um skólavist með umsókninni eða strax og staðfesting liggur fyrir. Sé umsókn staðfest gerir skólastjóri sérstakan skriflegan samning við

viðkomandi, sem gildir í eitt ár í senn.

5. gr. Styrkir

Fyrir starfsmenn grunnskóla Odda bs er um að ræða launað námsleyfi í staðarlotum/verknámi, allt að 2 vikur á önn (4 vikur á skólaári), á prófdögum og í áföngum með mætingarskyldu.

Starfsmanni er veitt leyfi frá störfum og greidd dagvinnulaun miðað við starfshlutfall í fyrrgreindum tilfellum. Ef um lengri tíma er að ræða má semja við skólastjórnendur um tíma á móti tíma eða launalaust leyfi.

6. gr. Styrktími

Námsstuðnings nýtur við þann tíma sem telst eðlileg námsframvinda sbr. áætlaða námsáætlun. Tefjist nám vegna sérstakra aðstæðna er heimilt að framlengja stuðninginn. Upplýsingum um námsframvindu skal komið til skólastjóra í lok hverrar annar.

7. gr. Skyldur styrkþega

Styrkþegi er hvattur til að starfa við grunnskóla Odda bs. í a.m.k. tvö ár eftir að námi lýkur.

 

8. gr. Takmarkanir

Fjöldi nema sem nýtur stuðnings til náms í grunnskólakennarafræðum ræðst af þörf grunnskóla Odda bs. fyrir faglært starfsfólk á hverjum tíma. Skólastjóri og stjórn Odda bs. áskilja sér rétt til að hafna umsóknum. Skólastjóri getur hafnað styrkumsókn, hátti þannig til að starfsemi grunnskólans beri ekki forföll vegna náms starfsmanna.

9. gr. Álitamál

Verði verulegar breytingar á fyrirkomulagi fjarnáms eða á persónulegum högum nema getur framkvæmdastjóri Odda bs. leyft frávik frá reglum þessum. Stjórn Odda bs. úrskurðar í álitamálum sem upp kunna að koma við framkvæmd þessara reglna.

10. gr. Gildistími

Reglur þessar gilda til 1. júní 2030 og öðlast gildi við samþykkt þeirra í stjórn Odda bs.

Samþykkt af stjórn Odda bs. þann 29. janúar 2025 og staðfest af sveitarstjórnum Rangárþings ytra og Ásahrepps í kjölfarið.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?