Tengill á reglurnar á pdf-sniði
1. gr. Gildissvið
Reglur þessar eru settar á grunni Skólastefnu Rangárþings ytra og Ásahrepps – Göngum glöð til verka – og gilda um nema sem leggja stund á nám sem gagnast í leikskólastarfi.
2. gr. Markmið
Markmið með reglum þessum er að hækka menntunarstig starfsmanna í leikskólum Odda bs. og er liður í því að fjölga fagmenntuðu starfsfólki þeirra þannig að í árslok 2030 verði a.m.k. 2 af hverjum 5 starfsmönnum menntaðir leikskólakennarar og 2 af hverjum 3 starfsmönnum árið 2033 líkt og kveðið er á í 14. gr. laga nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
3. gr. Styrkhæft nám
Reglur þessar gilda um styrki starfsmanna Odda bs. til eftirfarandi náms:
- Diplómanám í leikskólafræðum í háskóla; 120 einingar
- Leikskólakennaranám, Ed. 180 einingar
- Leikskólakennarafræði, Ed. 120 einingar (veitir rétt til leyfisbréfs)
- Framhaldsnám til Ed. fyrir starfandi leikskólakennara 120 einingar
- Annað viðurkennt nám sem nýtist leikskólanum s. leikskólaliðanám, þroskaþjálfanám og iðjuþjálfanám
4. gr. Styrkþegar og umsóknir
Umsækjandi skal vera starfsmaður í leikskólum Odda bs. í a.m.k. 50% starfshlutfalli þegar sótt er um styrk. Umsókn um styrk skal berast leikskólastjóra/Odda bs. mánuði fyrir upphaf haust- eða vorannar á þar tilgerðu umsóknarblaði sem finna má á heimasíðu sveitarfélaganna og hjá leikskólastjórum. Í umsókn skulu koma fram nákvæmar upplýsingar um fyrirhugað nám,
námstíma og starfsferil umsækjanda. Ber umsækjanda að skila staðfestingu um skólavist með umsókninni eða strax og staðfesting liggur fyrir. Sé umsókn staðfest gerir leikskólastjóri
sérstakan skriflegan samning við viðkomandi, sem gildir í eitt ár í senn.
5. gr. Styrkir
- Fyrir starfsmenn leikskóla Odda bs er um að ræða launað námsleyfi í
staðarlotum/verknámi, allt að 3 vikur á önn (6 vikur á skólaári), á prófdögum og í áföngum með mætingarskyldu. Starfsmanni er veitt leyfi frá störfum og greidd dagvinnulaun miðað við starfshlutfall í fyrrgreindum tilfellum. Starfsmenn í námi hafa aðgang að vinnuherbergi í
leikskólunum með aðgangi að tölvum, prentara og ljósritunarvél eftir að vinnudegi lýkur og um helgar.
- Fyrir alla nema sem falla undir skilgreiningu 4. gr. er um að ræða eingreiðslur skv. 6. gr. í lok annar hafi nemi staðist áætlaða námsáætlun. Allir nemar hafa frían aðgang að námsveri, með nettengingu.
- Fyrir sérlega áhugaverð lokaverkefni í bakkalár-eða meistaranámi leikskólakennara sem að mati stjórnar Odda bs./leikskólastjóra hafa verulega þýðingu fyrir leikskólastarfið. Er
leikskólastjóra heimilt að semja um vinnslu við verkefni á vinnutíma á dagvinnulaunum.
6. gr. Fjárhæð eingreiðslna
- Háskólanám Eingreiðsla til nema sem jafnframt er starfsmaður leikskóla Odda bs. nemur að hámarki 75.000 hvert sinn (m.v. 30 staðnar ECTS einingar). Eingreiðsla fyrir lokna áfanga skal greidd hlutfallslega ef nemi lýkur færri einingum þó aldrei færri en 15 ECTS einingum. Heimilt er að skipta greiðslu eftir fyrir fram ákveðinni áfangaskiptingu.
- Leikskólaliðanám Eingreiðsla við lok leikskólaliðanáms að upphæð 000 kr.
7. gr. Styrktími
Styrktími miðast við þann tíma sem telst eðlileg námsframvinda sbr. áætlaða námsáætlun. Tefjist nám vegna sérstakra aðstæðna er heimilt að framlengja stuðninginn. Upplýsingum um námsframvindu skal komið til leikskólastjóra/Odda bs.í lok hverrar annar.
8. gr. Skyldur styrkþega
Æskilegt er að styrkþegi starfi við leikskóla Odda bs. í a.m.k. tvö ár eftir að námi lýkur. Starfshlutfall þarf að vera að minnsta kosti 75%.
9. gr. Takmarkanir
Fjöldi nema sem nýtur stuðnings til náms í leikskólakennarafræðum ræðst af þörf leikskóla Odda bs. fyrir faglært starfsfólk á hverjum tíma. Leikskólastjóri og stjórn Odda bs. áskilja sér rétt til að hafna umsóknum. Leikskólastjóri getur hafnað styrkumsókn, hátti þannig til að starfsemi
leikskólans beri ekki forföll vegna náms starfsmanna. Njóti nemi styrkja frá öðru sveitarfélagi vegna sama náms á hann ekki rétt á styrk samkvæmt reglum þessum.
10. gr. Álitamál
Verði verulegar breytingar á fyrirkomulagi fjarnáms eða á persónulegum högum nema getur framkvæmdastjóri Odda bs. leyft frávik frá reglum þessum. Stjórn Odda bs. úrskurðar í álitamálum sem upp kunna að koma við framkvæmd þessara reglna.
11. gr. Gildistími
Reglur þessar gilda til 1. júní 2033 og öðlast gildi við samþykkt þeirra í stjórn Odda bs.
Samþykkt af stjórn Odda bs. þann 29. janúar 2025 og staðfest af sveitarstjórnum Rangárþings ytra og Ásahrepps í kjölfarið.