Starfsmann vantar í 50% stöðu eftir hádegi við Leikskólann Laugalandi frá 1. september n.k.
Leitað er eftir jákvæðum, duglegum, sveigjanlegum og metnaðarfullum einstaklingi, karli eða konu með góða skipulagshæfni ásamt góðri hæfni í mannlegum samskiptum.
Starfsmaður skal vinna við almenn uppeldisstörf með starfsmönnum leikskólans eftir því sem við á ásamt því að sjá um þrif leikskólans á skólatíma.
Leikskólinn Laugalandi er rúmlega 30 barna einnar deildar leikskóli og er áhersla í starfi leikskólans traust og góð umönnun, leikur og vellíðan barna.
Hægt er að skoða námskrá á heimasíðu leikskólans.
Umsóknarfrestur er til 23. ágúst og skulu umsóknir ásamt meðmælum sendast á Leikskólann Laugalandi, 851 Hella.
Veffang: http://www.leikskolinn.is/laugaland
Netfang: leikskolinn@laugaland.is