23. ágúst 2018
Fréttir
Mynd frá því að Umf Hekla tók þátt í sínu fyrsta fimleikamóti eftir því sem best er vitað.
Krílaæfingar (leikskólakrakkar) verða í boði á fimmtudögum í vetur í íþróttahúsinu á Hellu.
Yngri krílin 1 ½ árs til 4 ára verða kl. 16:10- 16:45.
Eldri krílin 4 ára til 6 ára verða kl. 16:45-17:30.
Þjálfari er Erla Sigríður Sigurðardóttir ásamt leiðbeinendum.
Æfingar hefjast fyrstu vikuna í september.
Bendum við foreldrum á facebook hópinn okkar; krílahópur.
Fyrirvari er á að einhverjar æfingar geta fallið niður í vetur vegna skorts á þjálfurum, ekki fékkst afleysingaþjálfari til starfa. Við gerum okkar besta til að bæta það upp.
Skráning skal sendast á; heklufimleikar@gmail.com með nafn barns, aldri , forráðamanni og símanúmeri forráðamanns.
Umf. Hekla.