17. september 2020
Fréttir
![Grunnskólinn á Hellu fær afhentan Grænfánann í 6. sinn](/static/news/lg/screen-shot-2020-09-16-at-17.15.56.png)
Þann 16. september, á afmælisdegi Ómars Ragnarsson er dagur íslenskrar náttúru. Í tilefni þess fóru allir nemendur og starfsfólk skólans víðsvegar um Hellu til að tína rusl. Auk þess fengu allir nýbakaðar lummur í tilefni dagsins. Eftir það stilltu sér allir upp í grænfánamerkið, ýmist með blá, græn eða hvít höfuðföt til að hægt væri að taka mynd með dróna. Eftir það fengum við Grænfánann afhentan í 6. sinn og erum við að sjálfsögðu afar stolt af því.