Settur hefur verið upp ratleikur í sveitarfélaginu fyrir unga sem aldna. Ratleikurinn er fyrsta verkefnið á vegum Heilsueflandi samfélags og er hann hvatning fyrir fólk að vera saman, ferðast og hreyfa sig þar sem á hverri stöð er smá æfing. Ratleikurinn krefst þess að fara akandi þar sem stöðvarnar eru á víð og dreif um sveitarfélagið. Er því mælt með að taka með sér nesti og gera sér glaðan dag saman.
Í sundlauginni á Hellu er að finna blað sem fylla þarf út á meðan ratleik stendur yfir, blaðið er einnig hægt að nálgast á rafrænu formi hér.
Áfangastaðir ratleiksins eru 10 talsins og á hverri stöð er:
- Spurning, fyrir yngri kynslóðina
- Æfing
- Vísbending um næsta áfangastað
Þegar ratleik er lokið skal skila blaðinu útfylltu í sundlaugina á Hellu eða á Laugalandi og er frítt í sund fyrir alla þátttakendur.
Hægt er að skila inn blöðunum til og með 14. ágúst. Á Töðugjöldum verður dregið úr pottinum þar sem veglegir vinningar verða í boði!
Góða skemmtun!