Aðalfundur foreldrafélags Helluskóla 7. október 2024

Foreldrafélag Grunnskólans á Hellu boðar til aðalfundar félagsins 7. október nk. kl. 20 í Grunnskólanum á Hellu.

Félagið vill hvetja foreldra og forsjáraðila til að fjölmenna á fundinn. Auk almennra aðalfundarstarfa verður Kristín Sigfúsdóttir skólastjóri með stutt erindi og Skúli Bragi Geirdal verður með fyrirlesturinn „Algóritminn sem elur mig upp“ sem fjallar um netöryggi og miðlanotkun barna.

Skúli Bragi er sviðsstjóri hjá Netöryggismiðstöð Íslands (SAFT) sem vinnur að vakningarátaki um örugga tækni- og miðlanotkun.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?