Landsvirkjun vinnur að undirbúiningi vindmyllusvæðis ofan við Búrfell, í Búrfellslundi. Þriðjudaginn 27. október geta áhugasamir kynnt sér verkefnið, í Miðju, verslunarmiðstöð á Hellu á milli 15 og 18. Klukkan 20:00 hefst síðan kynningarfundur á Hótel Stracta.
Lið Rangárþings ytra sigraði í afar jafnri og skemmtilegri keppni við Strandamenn í Útsvari í kvöld. Lokatölur voru 73-71. Líkur eru til að Strandamenn komist engu að síður áfram á stigafjölda.
Birt hefur verið frummatsskýrsla um mat á umhverfisáhrifum fyrir Búrfellslund - vindorkugarð. Skýrsluna er hægt að skoða á vefnum hér - en skýrslan liggur einnig frammi í afgreiðslu Rangárþings ytra.
Ákveðið er að fara í hreinsunarátak í sveitum á vegum Sorpstöðvar Rangárvallaýslu. Gámar verða staðsettir á "gömlu" gámasvæðunum dagaana 13. október til 19. október nk. í Rangárþingi ytra.
Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum
Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýsir eftir umsóknum. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar, menningar og atvinnuþróunar á Suðurlandi. Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur tekið við hlutverki Menningarráðs og Vaxtarsamnings Suðurlands.
Þjónustumiðstöð og skrifstofa Rangárþings ytra loka snemma í dag
Í dag, föstudaginn 9. október, verða þjónustumiðstöð og skrifstofa Rangárþings ytra lokað kl. 11:00 vegna fræðsluferðar starfsmanna. Skrifstofa Félags- og skólaþjónustu Rangárþings og V. Skaft. verður opin til 13:00 skv. venju.