Kynningarfundur vegna fyrirhugaðra framkvæmda Vegagerðarinnar á Sprengisandsleið (26) verður miðvikudaginn 5. nóvember hjá Steinsholti sf., Suðurlandsvegi 1-3, Hellu.
Minjastofnun Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki
Minjastofnun Íslands hefur nú auglýst eftir umsóknum um styrki úr húsafriðunarsjóði til verkefna á árinu 2015.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2014.
Í kvöld fór fram í Íþróttahúsinu á Hellu hraðmót HSK í blaki kvenna. Að þessu sinni voru það 7 sunnlensk lið sem tóku þátt. Dímon-Hekla var með tvö lið skipuð eldsprækum konum. A liðið gerði sé lítið fyrir og tók gullið. Í öðru sæti varð Hamar og í því þriðja Laugdælur.
Íbúafundur verður mánudaginn 13. október n.k. kl. 20:00 í Menningarhúsinu, Hellu. Á fundinn mæta Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur, Þorsteinn Jóhannsson frá Umhverfisstofnun og Þórólfur Guðnason frá sóttvarnalækni auk fulltrúa frá almannavörnum í héraði.
Almannavarnanefnd Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu.