Þann 16. apríl n.k. verður haldið málþing um Hekluskóga í Frægarði, Gunnarsholti. Á málþinginu verða flutt mörg fróðleg erindi og er öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Ráðstefna haldin á Stracta Hótel Hellu þann 25. mars nk. þar sem fjallað verður um þrjú þemu sem eru mikilvæg fyrir allt Suðurland: auðlindir, ferðamál og miðhálendið. Hverju gæti sameiginleg sýn á skipulagsmál á Suðurlandi, eða tiltekin svæði innan þess, skilað fyrir byggðaþróun og þannig stutt við sóknaráætlun svæðisins?
Ráðstefna um lífrænan úrgang, haldinn í Gunnarsholti þann 20. mars nk. Fjallað verður á margvíslegan hátt um þá möguleika sem felast í nýtingu lífræns úrgangs, meðal annars til skógræktar og landgræðslu.
Rótarýklúbbur Rangæinga í samstarfi við Lögreglustjórann á Suðurlandi býður til málþings í Gunnarsholti 26. febrúar nk. um náttúruvernd og öryggi í ferðaþjónustu.