13. febrúar 2023
Fréttir
Afleysing
Leikskólinn Heklukot leitar að starfsmanni tímabundið til að sinna afleysingum við leikskólann.
Ráðningartími er frá 21. febrúar til júní/júlí 2023 með möguleika á framtíðar ráðningu.
Vinnutíminn frá kl. 8:00-16:00 virka daga.
Viðkomandi þarf að hafa áhuga á að starfa með börnum, sýna ábyrgð í starfi, vera stundvís og sveigjanleg/ur.
Góð íslenskukunnátta er frumskilyrði.
Allar nánari upplýsingar veitir Ingigerður Stefánsdóttir í s: 4887045 eða á netfanginu inga@heklukot.is.