12. mars 2024
Fréttir
![Fyrirlestur um grindarbotninn 19. mars](/static/news/lg/herdiskjartans.jpeg)
Herdís Kjartansdóttir sjúkraþjálfari verður með fyrirlestur um grindarbotninn, hvernig hann virkar, helstu vandamál tengd honum og ráð við grindarbotnsvandamálum þriðjudaginn 19. mars kl. 20:00 í Hvolnum á Hvolsvelli.
Aðgangur er ókeypis.
Herdís er með BSc í sjúkraþjálfarafræðum frá læknadeild Háskóla Íslands og hefur sótt fjölmörg námskeið á sviðum sjúkraþjálfunar og þjálfunar hérlendis og erlendis, meðal annars námskeið á sviði kvenheilsu, meðhöndlunar stoðkerfisvandamála ofl.