Rangárþing ytra komið áfram í 16-liða úrslit í Útsvari!
Frábært lið Rangárþings ytra atti kappi við lið Fljótsdalshéraðs í Útsvari í gærkvöldi. Leikar fóru þannig að Rangárþing ytra tapaði með fjórum stigum eftir æsispennandi keppni en lokastaðan var 62 – 66 Fljótsdalshéraði í vil.
Enga að síður þýðir þetta að liðið varð eitt af 5 stigahæstu tapliðum vetrarins og heldur því áfram í 16 – liða úrslitin. Glæsileg frammistaða hjá okkar fólki.
09. desember 2017
Fréttir