Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra. Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum Brekkur 2, Kaldakinn, Þjóðólfshagi 1, Hólar og Ægissíða , lóð 4.
Hér er lýst ellefu hjólreiðaleiðum, auðveldum og erfiðum, sem eiga það sameiginlegt að þær liggja í hring og að hægt er að loka hringnum á einum degi. Hverri leiðarlýsingu fylgja tillögur að fleiri ferðum.
Hátíðarhöld í tilefni af 17. júní verða á þremur stöðum í sveitarfélaginu. Á Brúarlundi, Í Kambsrétt og í Þykkvabæ. Dagskrá hefst kl. 14:00 á öllum stöðum.
Kynning á mati á umhverfisáhrifum vegna Hvammsvirkjunar í dag!
Kynningartími á mati á umhverfisáhrifum Hvammsvirkjunar er hafinn. Opinn fundur með almenningi og fagaðilum þar sem niðurstöður frummatsskýrslunnar verða kynntar á Stracta í dag á Stracta frá kl. 15-21.
Fundarboð. 38. fundur sveitarstjórnar Rangárþings ytra verður haldinn að Suðurlandsvegi 1-3, 14. Juní 2017 og hefst kl. 15:00. Dagskrá má nálgast með því að smella á þessa frétt.
Á vorfundi stjórnar Odda bs með áheyrnarfulltrúum kennara og foreldra voru kynntar niðurstöður á ytra mati fyrir grunnskólana á Hellu og Laugalandi. Ytra matið er unnið af sérfræðingum Menntavísindastofnunar og þar er tekið fyrir allt skólastarfið og sérstaklega litið til stjórnunar, náms og kennslu, framkvæmdar á innra mati og skólabrags.
Þriðja árið í röð ber Rangárþing ytra sigur úr bítum með 452m synta á hvern íbúa. Í öðru sæti er nágranna sveitarfélag þeirra, Rangárþing eystra með 180m synta á hvern íbúa. Í þriðja sæti eru svo íbúar í Skaftárhreppi með 133m synta á hvern íbúa í sveitarfélaginu.
Dagana 1.júní til 28. júní 2017 verður hreinsunarátak í sveitum á vegum Sorpstöðvar Rangárvallasýslu. Gámar verða á tímabilinu staðsettir á „gömlu“ gámastæðunum. þessara staða: