Truflun gæti orðið hjá vatnsveitunni vegna rafmangsleysis 8. ágúst

Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps tilkynnir:

Eins og fram hefur komið verður rafmagn tekið af Hellu og nágrenni (aðveitustöð Hellu) vegna viðgerða hjá Rarik 8. ágúst næstkomandi frá kl. 01:00–04:00.

Þess vegna gætu truflanir orðið á vatnsveitu svæðisins á sama tíma. Truflanir gætu komið fram sem lágur vatnsþrýstingur eða vatnsleysi á einhverjum svæðum.

Kort af svæðinu sem um ræðir má sjá á heimasíðu Rarik.

Beðist er velvirðingar á óþægindum.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?