Rangárþing ytra og Loftmyndir ehf gera með sér samning

Rangárþing ytra og Loftmyndir ehf hafa gert með sér samning sem snýr fyrst og fremst að því að bæta við þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Í gegnum kortasjá á vef sveitarfélagsins munu íbúar sjálfir getað nálgast ýmiss gögn svo sem teikningar af sínum húsum, deiliskipulag, hvernig fráveitu, rafveitu og hitaveitulagnir liggja og fleira. Um leið og kortasjáin verður aðgengileg munum við setja tilkynningu á heimasíðu sveitarfélagsins.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?