Ekki tókst að halda íbúafund um samfélagsleg áhrif virkjana síðasta laugardag vegna veðurs. Nýr fundartími er kl 11:00-14:00 á laugardaginn næstkomandi, þann 12. desember. Fundurinn verður haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi.
Til fundarins boðar faghópur III, sem meta á samfélagsleg áhrif virkjanakosta í þriðja áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar (sjá www.ramma.is). Íbúum Ásahrepps, Flóahrepps, Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps er boðið til fundarins og stefnt er að því að ræða ýmis samfélagsleg áhrif virkjana.
Fundurinn verður haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi laugardaginn 12.desember, kl. 11:00-14:00 og er opinn öllum íbúum sveitarfélaganna á meðan húsrúm leyfir. Þátttakendum verður skipt í minni hópa til að ræða áhrif fyrirhugaðra virkjana á samfélögin.
Umsjón fundarins er í höndum Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Boðið verður upp á léttar veitingar og eru þátttakendur beðnir að skrá þátttöku á vefsíðunni www.felagsvisindastofnun.is eins snemma og mögulegt er.
Vonumst til að sjá sem flesta,
Faghópur III