11. júní 2015
Fréttir
![Ljósleiðara í dreifbýli](/static/news/auglysing_600x400_27_31.png)
Lagning ljósleiðara í dreifbýli sveitarfélagsins Rangárþings ytra.
Sveitarfélagið Rangárþing ytra telur mikilvægt að ljósleiðarakerfi verði komið upp sem
fyrst í dreifbýli sveitarfélagsins, þ.e. utan Hellu. Því vinnur sveitarfélagið nú að gerð
áætlunar um lagningu ljósleiðara á öll lögheimili á umræddu svæði. Vegna þessa er óskað
eftir því að þeir aðilar sem hyggjast leggja ljósleiðara eða fara í aðrar fjárfestingar til að
koma á háhraðanettengingum á svæðinu á næstu þremur árum sendi sveitarfélaginu
upplýsingar um það. Óskað er eftir því að upplýsingarnar berist á skrifstofu
sveitarfélagsins, Suðurlandsvegi 1, 850 Hellu fyrir 30. júní 2015.