04. desember 2015
Fréttir
Í gær voru jólatónleikar Tónslistarskóla Rangæinga haldnir í menningarsalnum á Hellu, þetta voru seinni tónleikar tónlistarskólans en fyrri tónleikarnir voru haldnir í fyrradag á Hvolsvelli. Tónleikarnir voru frábærir og virkilega gaman að sjá það mikla og öfluga starf sem þar fer fram. Tónlistarskóli Rangæinga er starfræktur í allri Rangárvallasýslu og kennir á Hvolsvelli, Hellu og Laugalandi. Nemendur eru um 250 og starfið virkilega öflugt. Það verður spennandi að fylgjast með öllum þessu ungu og efnilegu tónlistarmönnum í framtíðinni.
Fleiri myndir eru aðgengilegar á facebook síðu Rangárþings ytra, smellið hér!