Heilsueflandi Rangárþing haustið 2023

Þann 19. september munu sveitarfélögin Rangárþing eystra, Rangárþing ytra og Ásahreppur sameina krafta sína og bjóða íþróttafélögum og öllum þeim sem koma að heilsueflingu í víðasta skilning þess orðs til samstarfs og vera með kynningu á sínu starfi eða sinni heilsuvöru.

Um er að ræða tvo klukkutíma, milli kl. 17:00 – 19:00 þar sem þátttakendur fá svæði í íþróttahúsinu á Hellu til þess að kynna sitt starf/vöru.

Markmiðið með þessari samkomu er að hvetja íbúa Rangárþings til heilsueflingar sem og kynna allt það góða sem í boði er í sýslunni.

Viðburðurinn er fyrir íbúa á öllum aldri.

Áhugasömum aðilum sem vilja kynna sína starfsemi er bent á að hafa samabnd við Ólaf Örn íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Rangárþings eystra á netfanginu olafurorn@hvolsvollur.is eða í síma 694-3073.

Undirrituð sjá um skipulag, undirbúning og gefa nánari upplýsingar.

Með von um áhuga, góða þátttöku og mikla aðsókn,

Ólafur Örn Oddsson, Ragnar Jóhannsson, Nanna Jónsdóttir, Bjarni Daníelsson og Erla Sigríður Sigurðardóttir

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?