Grunnskólinn Hellu auglýsir eftir stuðningsfulltrúa/stundakennara

Laus er 40-50% staða stuðningsfulltrúa og/eða stundakennara, aðallega á miðstigi.

Um tímabundna ráðningu er að ræða.

Hæfnikröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, s.s. stuðningsfulltrúanám.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
  • Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Skipulagshæfni

Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst.

Í Grunnskólanum Hellu eru 178 nemendur í 1.-10. bekk skólaárið 2024-2025.

 

Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðu hans.

Vinsamlegast hafið samband við undirrituð til að fá frekari upplýsingar:

Kristín Sigfúsdóttir skólastjóri á netfang kristins@grhella.is eða í síma 488 7021 / 663 6217

Kristinn Ingi Guðnas. aðstoðarskólastjóri á netfang kristinn@grhella.is eða í síma 488 7022 / 848 1467

Umsóknarfrestur er til 24. október 2024

Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?