Lyngalda
Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum í gatnagerð Gatnagerð Hellu- Lyngalda.
Til þess að nálgast gögnin smellið hér og þér verður vísað áfram.
Verkið felur í sér gerð á nýrri götu, Lyngöldu á Hellu. Verkið felur í sér jarðvegsskipti í götustæði samkvæmt kennisniði og leggja styrktarlag. Einnig skal verktaki leggja fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu og ýmist leggja eða aðstoða við lagningu annarra veitulagna.
Helstu magntölur eru:
Gröftur 1600 m³
Styrktarlag og fylling í lagnaskurði 900m³
Fráveitulagnir 528 m
Vatnsveitulagnir 254 m
Hitaveitulagnir 252 m
Verklok eru áætluð í lok september 2023
Útboðsgögn verða afhent frá og með 11.maí. Til þess að nálgast gögnin smellið hér og þér verður vísað áfram.
Tilboðum skal skila inn fyrir kl. 11:00 Þriðjudaginn 30. maí í lokuðu umslagi á skrifstofu Rangárþings ytra Suðurlandsvegi 1 eða á netfangið tomas@ry.is