Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti þann 13. nóvember 2024 að gefa út framkvæmdaleyfi vegna efnistöku á efnistökustað E70 á Tungnaáreyrum í tengslum við framkvæmdir við vindorkuver við Vaðöldu (Búrfellslund) enda er framkvæmdin í samræmi við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins. Skipulagsfulltrúa var falið að gefa út framkvæmdaleyfi og hafa eftirlit með framkvæmdum.
Útgáfa framkvæmdaleyfisins var birt 14.11.2024 á heimasíðunni og í Skipulagsgáttinni.
Umsókn framkvæmdaraðila, dags. 16. september 2024 má nálgast hér.
Fundarsaga stjórnsýslu sveitarfélagsins vegna framkvæmdaleyfisumsóknar má nálgast hér.
Umsögn Forsætisráðuneytisins, dags. 21. október 2024 má nálgast hér.
Uppdrátt BUF-B-U00-F5-010 vegna breytinga á umsókn framkvæmdaraðila má nálgast hér.
Afrit af útgefnu framkvæmdaleyfi má nálgast hér.