Rangárþing ytra auglýsir útboð í jarðvinnu fyrir viðbyggingu Grunnskólans á Hellu
Óskað er eftir tilboðum í verkið Rif og jarðvinna vegna fyrsta áfanga þróunar skólasvæðisins á Hellu
Verkið felst i niðurrifi á um það bil 75 m2 steinssteyptri byggingu sem er partur af elsta hluta skólans ásamt jarðvegsskiptum undir viðbyggingu og síðan fyllingu innan í og utan með sökklum.
Helstu magntölur eru:
Niðurrif og förgun steypu 30 m3
Niðurrif og förgun á þakvirki 75 m2
Gröftur í lausum jarðvegi 2000 m3
Fyllingar 2000 m3
Verklok niðurrifs og jarðvegsskipta er um miðjan apríl og fyllingar og lagna í grunn um miðjan maí.
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu Rangárþings ytra að Suðurlandsvegi 1 á Hellu eða með því að senda tölvupóst á netfangið tomas@ry.is frá og með föstudeginum 28. janúar 2022
Tilboðum skal skila inn fyrir kl 14.00 föstudaginn 18. febrúar 2022 í afgreiðslu sveitarfélagsins að Suðurlandsvegi 1 á Hellu eða rafrænt á netfangið tomas@ry.is