Gríðarlega fjölbreytt starfsemi er í sveitarfélaginu. Þess vegna óskum við eftir því að fyrirtæki sendi upplýsingar og myndir/logo í gegnum þar til gert eyðublað.
Svo upplýsingarnar séu réttar er mikilvægt að þær komi beint frá þeim aðila sem ber ábyrgð á viðkomandi starfsemi.
Upplýsingarnar verða notaðar til kynningar á fyrirtækjunum, kynningar á sveitarfélaginu, kortagerð og fl.
Við hvetjum öll fyrirtæki til þess að senda inn upplýsingar og myndir hvort sem viðkomandi er með rekstur á eigin kt eða fyrirtæki. Bændur, verslanir, ferðaþjónustuaðilar, smiðir og allar aðrar greinar.
Ef einhverjar spurningar eru vegna verkefnisins ekki hika við að hafa samband í gegnum netfangið osp@ry.is eða í s: 4887000.
Ég á höfundaréttinn af því myndefni sem fylgir hér og gef Rangárþingi ytra heimild til þess að nota það í kynningu á mínu fyrirtæki og sveitarfélaginu.