Fundarboð. 38. fundur sveitarstjórnar Rangárþings ytra verður haldinn að Suðurlandsvegi 1-3, 14. Juní 2017 og hefst kl. 15:00. Dagskrá má nálgast með því að smella á þessa frétt.
Á vorfundi stjórnar Odda bs með áheyrnarfulltrúum kennara og foreldra voru kynntar niðurstöður á ytra mati fyrir grunnskólana á Hellu og Laugalandi. Ytra matið er unnið af sérfræðingum Menntavísindastofnunar og þar er tekið fyrir allt skólastarfið og sérstaklega litið til stjórnunar, náms og kennslu, framkvæmdar á innra mati og skólabrags.
Þriðja árið í röð ber Rangárþing ytra sigur úr bítum með 452m synta á hvern íbúa. Í öðru sæti er nágranna sveitarfélag þeirra, Rangárþing eystra með 180m synta á hvern íbúa. Í þriðja sæti eru svo íbúar í Skaftárhreppi með 133m synta á hvern íbúa í sveitarfélaginu.
Dagana 1.júní til 28. júní 2017 verður hreinsunarátak í sveitum á vegum Sorpstöðvar Rangárvallasýslu. Gámar verða á tímabilinu staðsettir á „gömlu“ gámastæðunum. þessara staða:
Fjölskylduganga UMF Heklu og miðnæturopnun í sundlauginni
Í tilefni hreyfiviku UMFÍ ætlar UMF Hekla að standa fyrir fjölskyldugöngu fimmtudaginn 1. júní ásamt því að miðnæturopnun verður í sundlauginni á Hellu.
Golftímar og kennsla fyrir börn og unglinga í sumar
Eins og undanfarin ár verður Gylfi Sigurjónsson með golftímana á Strandarvelli. Fyrsti tíminn er 1. júní n.k. og verða tímarnir í sumar á mánudögum kl. 13:00 og miðvikudögum kl. 18:00.
Markmiðið með hreyfiviku er að allir hreyfi sig í að minnsta 30 mín á dag. Öflug dagskrá er alla vikuna hjá okkur í Rangárþingi ytra og er hægt að kynna sér hana hér.
Vinnuskólinn hefst þriðjudaginn 6. júní n.k. kl. 08:00. Þáttekendur mæta í þjónustumiðstöð Rangárþings Ytra að Eyjasandi 9. Börn fædd 2004 mæta kl 09:00. Foreldrar/ forráðamenn eru boðaðir á fund þann sama dag kl 17:00.
Reiðveganefnd Geysis óskar eftir umsóknum frá félagsmönnum vegna undirbúnings 5 ára framkvæmdaáætlunar fyrir félagið. Umsóknir geta verið vegna lagningar nýrra reiðvega, vegna viðhalds eldri vega, vegna merkinga, vegna viðhalds áningarhólfa o.s.frv.