Auglýsing um skipulagsmál

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 2. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028.

 

Gunnarsholt land L164499. Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem núverandi hluti af Gunnarsholti landi L164499, Gunnarsholti L164495 og landi Geldingalækjar L164490, samtals um 60 ha, verði breytt úr landbúnaðarsvæði í iðnaðar- og athafnasvæði. Gert er ráð fyrir framleiðslu á skógarplöntum.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Hagi v/Selfjall 2. Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem lóðin Hagi v/Selfjall 2 yrði skilgreind sem Verslunar- og þjónustulóð í stað frístundalóðar áður. Ráðgert er að hefja ferðaþjónustu á lóðinni.

Skipulagsgögn má nálgast hér. 

 

Oddspartur Loki. Rangárþing ytra vinnur að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem svæði úr jörðinni yrði skilgreind sem Verslunar- og þjónustulóð í stað landbúnaðar áður. Fyrir er veitingastaður og tvenn kúluhús til útleigu innan skikans. Áform eru um áframhaldandi uppbyggingu innan svæðis, þá allt að 15 kúluhús og tvenn þjónustuhús. Einnig er gert ráð fyrir 5 stærri húsum til útleigu fyrir gesti.

Skipulagsgögn má nálgast hér

 

Vinnslutillögurnar eru til kynningar á opnunartíma hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is og að auki í www.skipulagsgatt.is

Kynningu lýkur þriðjudaginn 11. september nk klukkan 15.00

Vilji hagsmunaaðilar senda inn ábendingar á þessu stigi er það heimilt en formlegur frestur til athugasemda verður þó gefinn þegar tillagan hefur verið samþykkt til auglýsingar síðar.

 

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

 

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?