Viðburðaríkur vetur í Tónlistarskóla Rangæinga

Veturinn í Tónlistarskóla Rangæinga var viðburðaríkur, en í skólanum voru rétt rúmlega 150 nemendur skráðir í einkanám við skólann, tæplega 40 nemendur í sönglist og tæplega 90 nemendur í forskóla í grunnskólum og leikskólum í Rangárvallasýslu.

 

15 nemendur voru í Suzukinámi við skólann; á píanó, fiðlu, selló og blokkflautu. Einn nemandi var í framhaldsnámi, 13 nemendur í miðnámi og allir hinir í grunnámi.

 

Í vetur störfuðu 19 fastráðnir og fjórir stundakennarar við skólann, samtals í rúmlega 10 stöðugildum.

Þetta er einstaklega flottur hópur af frábæru tónlistarfólki, eins og hefur sýnt sig við undirbúning og framkvæmd kennaratónleikanna sem haldnir voru fyrir páskafrí.  Þeir tónleikar voru alfarið á vegum kennaranna sjálfra.

 

Viðburðir

Það var líka sérstaklega skemmtilegt að fara á nemendatónleika kennaranna, en þeir voru samtals 27 á þessu skólaári. Þá sér maður hvað þessir kennarar hlúa vel að nemendum sínum og leggja sig fram við kennslu.

 

Nemendur skólans komu einnig fram á öðrum tónleikum á vegum skólans, haldnir voru 6 tónfundir með ákveðnu þema, tveir stórir samspilstónleikar (jól og vor), og farið var í nokkrar heimsóknir á dvalarheimilin auk þátttöku nemenda í guðsþjónustum og á öðrum viðburðum, t.a.m. 90 ára afmæli Hvolsvallar og stóru upplestrarkeppninni. Einn nemandi hélt einleikstónleika í vor.

 

Samsöngshóparnir voru með tvo viðburði í vetur, en eldri samsöngsnemendur undir stjórn Aðalheiðar Gunnarsdóttur söngkennara settu á svið skemmtilega Disney-sýningu. Fengin var aðstoð grunn- og leikskólabarna við að útbúa leiksvið og skreytingar.

 

Yngri samsöngsnemendur undir stjórn Maríönnu Másdóttur héldu glæsilega tónlistarsýningu í anda Trolls-teiknimyndanna.

 

Einn nemandi skólans fékk að taka þátt í Upptaktinum, tónsköpunarverðlaun fyrir börn í 5.-10. bekk grunnskóla.

 

Þrír nemendur tóku þátt í Nótunni, uppskeruhátíð tónlistarskólanna, en svæðistónleikar voru haldnir í Salnum í Kópavogi í vor.

 

Nú eru nemendur skólans komnir í sumarfrí, en stjórnendur eru farnir að undirbúa næsta skólaár og verður margt skemmtilegt á döfinni þá!

 

 

 

Tónlistarskóli Rangæinga var stofnaður árið 1956 og er rekinn af þremur sveitarfélögum: Ásahreppi, Rangárþingi eystra og Rangárþingi ytra. Kennt er á Hvolsvelli, Hellu og Laugalandi.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?