Verkamaður óskast við Sorpstöðina á Strönd

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. óskar eftir verkamanni

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. óskar eftir að ráða verkamann við sorpmóttöku í 100% starfshlutfall á móttökustöðina á Strönd. Um fjölbreytt og margþætt framtíðarstarf er að ræða. Hjá Sorpstöð Rangárvallasýslu starfa um 7 starfsmenn í föstu starfi auk 3-4 í hlutastarfi. Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. er byggðasamlag í eigu Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Ásahrepps og þjónustar alla Rangárvallasýslu.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Móttaka viðskiptavina á Strönd, leiðbeinir og aðstoðar við losun og flokkun úrgangs.
  • Verkefni er tengjast umsýslu, flokkun og umhleðslu á úrgangi á Strönd.
  • Viðhald bifreiða, véla og húsnæðis á Strönd, allt eftir þekkingu og reynslu starfsmanns.
  • Viðhaldsverkefni og tiltekt á móttöku-, urðunar- og flokkunarsvæði á Strönd, eftir þörfum.
  • Önnur verkefni sem næsti yfirmaður felur starfsmanni og falla að starfssviði hans.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Gerð er krafa um framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum, ásamt snyrtimennsku.
  • Gerð er krafa um vinnuvélaréttindi ásamt endurmenntun því tengdu.
  • Meirapróf, ásamt reynslu af viðhaldi véla og tækja er kostur.
  • Starfsmaður þarf að geta talað og skilið íslensku og ensku.

 

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Víðir Reyr Þórsson, framkvæmdastjóri vidir@ry.is eða í síma 855-1757.

Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2025. Ásamt umsókn skal fylgja starfsferilsskrá. Senda skal umsóknir á Eggert Val Guðmundsson, stjórnarformann á netfangið eggertvalur@ry.is.

Allir áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.