29. desember 2020
Fréttir
Laugalandsskóli
Vegna fæðingarorlofs er laus til umsóknar 100% kennarastaða við Laugalandsskóla í Holtum, Rangárþingi ytra frá 1. febrúar
Um er að ræða umsjón í 5. – 6. b. meðal kennslugreina, íslenska, stærðfræði og samfélagsfræði. Einnig Samfélagsfræði í 8.- 10. b.
Umsækjandi þarf að hafa kennsluréttindi eða sambærilega menntun, góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum.
Laugalandsskóli er í um 100 km fjarlægð frá Reykjavík.
Gott húsnæði í boði á staðnum.
Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2021
Veffang: http://www.laugaland.is
Netfang: laugholt@laugaland.is
Upplýsingar veitir skólastjóri í vs. 487-6540 og gsm. 896-4841.
og aðstoðarskólastjóri vs. 4876544