12. desember 2016
Fréttir
Auglýst útboð
Niðurrekstrarstaurar fyrir brú á Þverá við Odda
Sveitarfélagið Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum í framleiðslu og flutning á steyptum niðurrekstrarstaurum undir brú á Þverá við Odda á Rangárvöllum.
Helstu magntölur eru:
- Framleiðsla niðurrekstrarstaura 600 m
- Flutningur niðurrekstrarstaura 114 tonn
Verklok eru fyrir 10.mars 2017
Útboðsgögn verða seld hjá Rangárþingi ytra að Suðurlandsvegi 1 á Hellu og í Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 12. desember 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 10. janúar 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.