Útboð - Trésmíði við suðurbyggingu Grunnskólans á Hellu

Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum í verkið „Grunnskólinn á Hellu, 2.áfangi: Suðurbygging - trésmíði“.

Rangárþing ytra er að byggja 2700 m2 viðbyggingu við grunnskólann á Hellu sem hýsir verknámsstofur, framleiðslueldhús, hátíðarsal, bókasafn og tónlistaskóla ásamt stjórnunarálmu fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla.

Smíða skal og setja upp innveggi, kerfisloft og annan innri frágang samkvæmt verklýsingu og tilboðsskrá. Vinna skal í nánu samstarfi við aðra verktaka sem sinna vinnu við frágang.

Verkið innifelur í aðalatriðum eftirtalda verkþætti:

  • Smíði innveggja 2113 m2
  • Kerfisloft 600x600m 135 m2
  • Kerfisloft 600x600mm í votrými 117 m2
  • Kerfisloft 600X1200mm 1888 m2
  • Bassaísog 95 m2
  • Gifsloft 146 m2
  • Handlistar og fl.

 

Útboðsgögnin er hægt er að nálgast með því að senda tölvupóst á netfangið tomas@ry.is og óska eftir þeim.

 

Verkið skal vinnast frá samþykki tilboðs og vera að fullu lokið 30.07.2025

Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu Rangárþings Ytra, eigi síðar en 12. okt 2024 kl. 14:00 eða í tölvupósti á netfangið tomas@ry.is og verður niðurstaða kynnt með tölvupósti seinnipart þess dags sem tilboðum er skilað inn.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?