Útboð - Þakfrágangur við Grunnskólann á Hellu

Lokað hefur verið fyrir þetta útboð

Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum í verkið „Grunnskólinn á Hellu, 2.áfangi Suðurbygging: Þakfrágangur“.

Rangárþing ytra er að byggja 2700 m2 viðbyggingu við Grunnskólann á Hellu sem hýsir verknámsstofur, framleiðslueldhús, hátíðarsal, bókasafn og tónlistaskóla, ásamt stjórnunarálmu fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla.

Verkið snýst um frágang á þökum suðurbyggingar grunnskólans á Hellu með þakpappaeinangrun og úthagatorfi á viðsnúin þök og einnig rakavarnalag, einangrun og þakpappa á heit þök.

Útboðsgögnin er hægt að nálgast með því að senda tölvupóst á netfangið tomas@ry.is og óska eftir útboðsgögnum eða fá aðgang að þeim með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan.

 

Útboðsgögn og nánari upplýsingar má nálgast með því að smella hér

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?