Útboð - Suðurbygging Grunnskólans á Hellu: Loftræsting

Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum í verkið „Grunnskólinn á Hellu – 2. áfangi suðurbyggingar: Loftræsting.

Rangárþing ytra er að byggja 2700 m2 viðbyggingu við grunnskólann á Hellu sem hýsir verknámsstofur, framleiðslueldhús, hátíðarsal, bókasafn og tónlistaskóla ásamt stjórnunarálmu fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla.

Verkið snýst um smíði og uppsetningu á loftræsikerfi ásamt öllum búnaði samkvæmt fyrirliggjandi teikningum. Um er að ræða tvö sjálfstæð loftræstikerfi með sambyggðum innblástur-/útsogssamstæðum auk sér útsogs fyrir eldhús og reyksogskerfi.

Gögnin er hægt er að nálgast með því að senda tölvupóst á netfangið tomas@ry.is og óska eftir útboðsgögnum eða sækja þau með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan:

Tengill á útboðsgögn

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?