Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum í verkið „Grunnskólinn á Hellu, 2.áfangi: Suðurbygging–Pípulagnir“
Rangárþing ytra er að byggja 2700 m2 viðbyggingu við grunnskólann á Hellu sem hýsir verknámsstofur, framleiðslueldhús, hátíðarsal, bókasafn og tónlistaskóla ásamt stjórnunarálmu fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla.
Verkið snýst um eftirfarandi:
- Lögn á fráveitulögnum frá grunnlögnum að þrifatækjum ásamt útvegun og uppsetningu á þrifatækjum.
- Lagningu neysluvatns frá inntaki að þrifatæjum.
- Smíði og uppsetningu á mæla- og tengigrindum fyrir ofnhitakerfi, gólfhitakerfi og snjóbræðslukerfi.
- Einnig er um að ræða lagningu á sjálfvirku slökkvikerfi með öllum tilheyrandi búnaði.
Gögnin er hægt er að nálgast með því að senda tölvupóst á netfangið tomas@ry.is og óska eftir útboðsgögnum eða smella á tengilinn hér fyrir neðan:
Nánari upplýsingar og útboðsgögn má nálgast með því að smella hér.
Verkið skal vinnast frá 15.07.2024 og vera að fullu lokið 30.07.2025
Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu Rangárþings Ytra, eigi síðar en 24. júní 2024 kl. 14:00 eða í tölvupósti á netfangið tomas@ry.is og verður niðurstaða kynnt með tölvupósti seinnipart þess dags sem tilboðum er skilað inn.