Sorpstöð Rangárvallasýslu bs
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs býður hér með út frágang á athafnalóð fyrirtækisins að Strönd Rangárþingi ytra. Um er að ræða uppsteypu rampa fyrir flokkun sorps, járnaþjöppuplan og plan við umhleðslustöð. Enn fremur gröft og fyllingu upp undir malbik og lagnir í plani. Leggja lagnir í plan og malbika það.
Hér er um almennt útboð að ræða. Óskað er eftir tilboðum í verkið í heild sinni eins og því er lýst í útboðs-og verklýsingu.
Helstu magntölur eru.
Skeringar /gröftur 5.800m³
Gröftur lagnaskurða stofnpípur 500m
Burðarlög / fyllingar 5.800m³
Efra burðarlag/jöfnunarlag 5.400m²
Malbik 5.100m²
Mótauppsláttur 540 m²
Bendistál 5.700kg
Steinsteypa 180 m³
Lagnir fráveitu-og ofanvatns 530m
Áætlað upphaf verks er 15. september 2015 og skal verkinu að fullu lokið 30. júní 2016.
Útboðsgögn verða afhent hjá MAREY arkitektum Eyrarvegi 29 800 Selfossi eða hjá Teiknistofu Páls Zóphóníassonar ehf , Kirkjuvegi 23, Vestmannaeyjum, netfang bb@teiknistofa.is
Tilboði skal skila á frumriti tilboðsforms í lokuðu umslagi merktu heiti útboðs til Sorpstöðvar Rangárvallasýslu bs, Félagsheimilinu Hvoli fyrir kl. 13:45 föstudaginn 28 ágúst 2015 og sama dag kl 14.00 verða tilboðin opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Sorpstöð Rangárvallasýslu bs