Það er orðinn árviss hefð að markað-, menningar- og jafnréttismálanefnd sveitarfélagsins blæs til jólaskreytingakeppni á aðventunni.
Keppt var í þremur flokkum í ár og fjölmargar tilnefningar bárust.
Best skreytta húsið: Lækjarbraut 11
Þau Jón og Ella á Lækjarbraut 11 á Rauðalæk eru vel að því komin að hljóta verðlaun fyrir best skreytta húsið enda hafa þau lagt mikið í skreytingarnar, bæði úti og inni. Jón hefur meira að segja hannað og búið til ljósaskiltin sem eru fyrir utan hjá þeim sjálfur og það er svolítið eins og að koma inn í jólaland að kíkja til þeirra. Við fengum að smella nokkrum myndum hjá þeim til að koma ykkur í jólaskapið.
Til hamingju Jón og Ella!
Best skreytta tréð: Bogatún 32 hjá Kristbjörgu Sigurjónsdóttur
Í garðinum hjá Kristbjörgu er einstaklega vel snyrt og fallega skreytt grenitré sem er eins og klippt út úr bíómynd. Það hlýtur titilinn „best skreytta tréð 2024“.
Til hamingju Kristbjörg!
Best skreytta fyrirtækið: Hellarnir við Hellu!
Það vakti strax athygli þegar ljósin hjá Hellunum fóru upp á aðventunni. Þau eru bæði áberandi og falleg og hafa svo sannarlega lífgað upp á umhverfið í skammdeginu.
Innilega til hamingju.
Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd þakkar innsendar tilnefningar og óskar sigurvegurum innilega til hamingju.
Einnig óskar nefndin íbúum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.