02. janúar 2015
Fréttir
Skv 2. mgr 10. gr laga um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal sækja um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka.
Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja endurnýjun umsóknar um húsaleigubætur fyrir árið 2015:
- Staðfest afrit af síðasta skattframtali þeirra sem lögheimili/aðsetur eiga í íbúðinni.
- Launaseðlar umsækjenda og þeirra sem lögheimili/aðsetur eiga í íbúðinni, fyrir þrjá síðustu mánuði.
- Staðfesting skóla vegna náms umsækjanda.
Umsókn skal hafa borist skrifstofu Rangárþings ytra, Suðurlandsvegi 1, 850 Hellu, eigi síðar en 15. janúar 2015
Skrifstofa Rangárþings ytra