16. apríl 2014
Fréttir
Tónlistarskóli Rangæinga óskar eftir tónlistarkennurum er geta hafið störf næsta haust.
Óskað er eftir áhugasömum kennurum til kennslu á píanó, blásturshljóðfæri, bassagítar, og hópkennslu í rytmiskri tónlist. Einnig blokkflautukennsla í forskólahópum.
Starfssvæði Tónlistarskóla Rangæinga er Rangárvallasýsla og kennt er á þremur stöðum í sýslunni þ.e. Hvolsvelli, Hellu og Laugalandi.
Mjög góð aðstaða í alla staði fyrir fjölskyldufólk að búa á þessu svæði og einungis í um 100 km. fjarlægð frá Reykjavík.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri skólans László Czenek í síma 897-7876 og á netfangi tonrang@ismennt.is