Fyrsti undirbúningsfundur Töðugjalda fór fram í gær, 11. maí. Það er fjólubláa/bleika hverfið sem undirbýr Töðugjöld ásamt markaðs- og kynningarfulltrúa sveitarfélagsins og bláa hverfið sem býður heim. Öllum hugmyndum er tekið opnum örmum og skal senda þær á markaðs- og kynningarfulltrúa á netfangið eirikur@ry.is
Töðugjöld verða haldin í 28. skipti en þau hafa verið haldin frá árinu 1994 að undanskildum Covid árunum og eru því með elstu bæjarhátíðum landsins. Töðugjöld er hátíð þar sem allir eru boðnir velkomnir og mikið er lagt uppúr því að fjölskyldan geti skemmt sér saman og dagskráin því miðuð að því. Töðugjöld eru undirbúin og haldin í samvinnu markaðs- og kynningarfulltrúa sveitarfélagsins og íbúa.
Hverfunum er skipt upp í liti og íbúar skreyta hús sín og umhverfi í viðeigandi lit.
Í ár (2023) er það fjólubláa/bleika hverfið sem undirbýr Töðugjöld ásamt markaðs- og kynningarfulltrúa sveitarfélagsins. Bláa hverfið býður heim.
Litaskipting hverfa: Græn/appelsínugult - neðra þorp sunna Hellubíó og sveitin vestan við ána. Svart/hvítt Neðra þorp norðan Hellubíó. Blátt - Heiðvangur, Freyvangur, Leikskálar og hluti Dynskála. Rautt - Sandurinn vestan við Langasand ásamt Þykkvabæ. Gult - sandurinn austan við Langasand að fjólubláa/bleika hverfinu og sveitin austan við Hellu. Fjólublátt/bleikt svæðið austan og norðan gula hverfisins.