22. júlí 2020
Fréttir

Umhverfisnefnd Rangárþings ytra óskar eftir tilnefningum vegna umhverfisverðlauna 2020.
Óskað er eftir tilnefningum í snyrtilegt umhverfi húss og lóðar, hvort sem er í þéttbýli eða dreifbýli.
Vinsamlegast sendið ábendingar ykkar á skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 1. ágúst nk. merk:
Rangárþing ytra (umhverfisnefnd)
Suðurlandsvegi 1-3
850 Hella
eða á netfangið ry@ry.is
Íbúar sveitarfélagsins og eigendur fyrirtækja eru hvattir til að taka höndum saman, hreinsa og fegra umhverfi sitt.