Tilkynning frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands varðand læknamönnun á heilsugæslunni í Rangárþingi
Undanfarið hafa verið breytingar á þeim læknum sem hafa áður verið fastráðnir við heilsugæsluna í
Rangárþingi. Því miður hefur þessi breyting valdið því að erfiðleikar hafa komið upp við að tryggja
fullnægjandi læknisþjónustu. Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU) lýsir yfir miklum áhyggjum af
þessari þróun og tekur málið mjög alvarlega. Í samvinnu við viðkomandi sveitarfélög er verið að leita
allra leiða við að finna og ráða lækna sem eru tilbúnir að koma til starfa til langs tíma og þar með
tryggja stöðugleika í læknisþjónustu í Rangárþingi.
Þangað til verður heilsugæslan mönnuð með afleysingarlæknum. Í janúar verða tveir læknar við störf
á heilsugæslunni og einn læknir mun vera á bráðavakt utan hefðbundins dagvinnutíma. Í febrúar er
búið að semja við einn íslenskan lækni. Til að auka aðgengi að læknisþjónustu enn frekar hefur HSU
gert samning við norska ráðningastofu sem sérhæfir sig í ráðningum lækna og munu þeir tryggja
heilsugæslunni í Rangárþingi eitt stöðugildi læknis næstu mánuðina og vonir standa til að læknir frá
þeim verði kominn til starfa strax í febrúar. Önnur mönnun á heilsugæslunni er óbreytt og
sjúkraflutningar eru ávallt á vakt allan sólarhringinn.
HSU færir starfsfólki sínu innilegar þakkir fyrir ómetanleg framlög þeirra undir erfiðum
kringumstæðum og þakkar jafnframt íbúum Rangárþings fyrir þeirra skilning og þolinmæði. HSU mun
halda íbúum og sveitarstjórnarfólki upplýstum um gang mála. Við erum einbeitt í áformum okkar um
að tryggja örugga og skilvirka læknisþjónustu í Rangárþingi til frambúðar.
Framkvæmdastjórn
Heilbrigðisstofnun Suðurlands